Japanski slagverksleikarinn og tónskáldið, Stomu Yamash´ta sneri á sínum tíma baki við frægð og frama á vesturlöndum og hvarf inn í heim Zen heimspeki og hugleiðslu í einu af hofum Kyoto.  Í kjölfarið þróaði hann afar sérstakan tónlistarheim í gegnum syngjandi steina, sem fluttir voru frá lítilli eyju utan Japansstrandar og höggnir til af miklu listfengi. Hljóðmögnun var unnin á vísindalegan hátt og sérstakir hljóðnemar hannaðir, sem gátu numið hinn margbreytilega yfirtóna-heim steinanna. 


Sverrir Guðjónsson kontratenor hefur frumflutt fjölda tónverka og ópera sem sérstaklega voru samin með raddsvið hans í huga.  Á undanförnum

árum hefur hann í auknum mæli tekið þátt í

spunakenndum verkefnum, þar sem þanþol raddarinnar er kannað til hins ýtrasta.  Samstarf þessara tveggja listamanna hófst í kjölfar sýningarinnar, “ Legends in Icelandic Music “, í boði Min-on Concert Association undir listrænni stjórn Sverris, sem sýnd var fyrir fullu húsi í 15 japönskum borgum ( ca. 30.000 áhorfendur ).


Stomu og Sverrir eru vinir og hafa þekkst í mörg ár. Myndin sýnir okkur tvo listamenn sem takast á við tónlitarsköpun sem byggir á þeim sérstöku kröftum sem þeir leiða saman; syngjandi steinar sem Stomu vinnur af vísindalegri nákvæmni og hin sérstaka rödd Sverris.


Tónverkið byggir á ferðalagi og þróun lífs í gegnum ímyndað völundarhús, sem tengir saman fortíð, nútíð, framtíð.  Hin svonefnda “ labirynth “ eða “ mandala “ býr yfir leyndardómum sem fylgt hafa manninum í gegnum aldirnar.  Vegferðin er mörkuð og leiðir okkur hægt  og bítandi að miðju orkusviðs, sem er upphaf og endir alls. 


Walking on Sound

Gengið í hljóði

Walking on Sound er samvinnuverkefni Seylunnar og franska kvikmynda-fyrirtækisins Les Films d'iCi í París. Leikstjóri og handritshöfundur er Jacques Debs. Fransk-þýska sjónvarpsstöðin Arte fjármagnaði stærstan hluta framleiðslunnar


Lengd: 52 mín. og 90 mín.

Frumsýnd í nóvember 2010

Verkefnið var styrkt af  Iðnaðarráðuneytinu,

Scandinavia  - Japan Sasakawa Foundation og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Ráðgjafi var Gréta Ólafsdóttir

Sýnishorn úr myndinni

Scandinavia-Japan Sasakawa Foundationhttp://www.sjsf.se/

IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ

Ljósmyndin er tekin við Fláajökul

Ef stiklan birtist ekki smellið þá á „reload page“

Seylan-kvikmyndagerð